Efnagreiningar
Á prófunarstofu efnarannsókna er boðið upp á prófanir fyrir matvæla- og fóðuriðnað.
Efnamælingar eru nauðsynlegar m.a. til að:
- Gefa upplýsingar um næringargildi matvæla
- Sannreyna rétta samsetningu matvara
- Meta gæði hráefna og afurða
Eftirtaldar mælingar eru meðal þeirra sem boðið er upp á án sérstaks fyrirvara
Mæling | Aðferð | Mælisvið |
Aska | ISO 5984:2002 /AC 1:2005 | 0,1-100% |
Þurrefni | ISO 6496:1999 (E) | 0,1-100% |
Fita | AOCS Ba 3-38 (2017), mod | 0,1-100% |
Fita | ISO 1443:1973 | 0,1-100% |
Nitrogen, N (Prótein) | ISO 5983-1:2005/AC 1:2009 (E) | 0,1-100% |
Salt | AOAC 976.18 (2005) | 0,1-100% |
Klór | AOAC 976.18 (2005) | 0,6-600 g/kg |
Aðferðir með breytingu (modified), eru aðferðir sem gerðar hafa verið lítilsháttar breytingar á upprunalegri aðferð.
Aðrar mælingar
Upplýsingar um aðferð má fá hjá Sýni ehf.
- ADF, trefjaefnainnihald í fóðri
- Ammoníak
- Anisidin gildi
- Ediksýra
- Fosfat
- Fríar fitusýrur
- Íshúð
- Joðtala
- Kólesteról
- Næringargildi
- Ósápanlegt efni
- Peroxíðgildi
- Sápunartala
- Sítrónusýra
- Súlfít
- Sykrur
- Sýrustig (pH)
- TMA/TVB_N
- Vatn í fitu
- Vatnsleysanlegt prótein
Frárennsli
- COD
- Svifagnir
- Olía og fita
- Köfnunarefni
- Fosfór
- Annað skv. samkomulagi
Hafa samband við Efnagreiningar: