Námskeið – HACCP 4 – Stjórnun HACCP kerfis

17/11/2025 - 28/11/2025, All Day

Námskeið - HACCP 4 - Stjórnun HACCP kerfis

Námskeið fyrir þá sem hafa góða reynslu og þekkingu á gæðamálum/HACCP og örverufræði matvæla (t.d. ábyrgðamenn HACCP kerfa og lykilstjórnendur) og vilja ná aukinni færni í HACCP, m.a. vegna krafa í Alþjóðlegum matvælastöðlum.

Áhersla er lögð á að þátttakendur fái dýpri skilning á HACCP og geti sett upp og innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.

Efni námskeiðs:

Stutt kynning á kröfum í matvælaöryggisstöðlum og reglugerðum.

Skuldbinding stjórnenda og matvælaöryggismenning.

Innleiðing matvælaöryggismenningar og markmiðasetning.

Hættur í matvæla- og fóðuriðnaði; örverufræðilegar, efnafræðilegar og eðlisfræðilegar hættur. Ofnæmisvaldar, matvælasvik og matvælaskemmdarverk.

Áhættumat og hættugreining.

Forvarnir og mikilvægi þeirra; birgjasamþykktir, skipulag (layout), viðhald, hreinlæti, birgjasamþykktir, þjálfun, persónulegt hreinlæti.

12 þrep Codex reglna um HACCP

  • HACCP hópur: Hvert er hlutverk hans og hvernig er besta að halda utan um vinnu HACCP hóps eða gæðaráðs? – Verkefna- og fundargerðarlistar til að halda vinnu HACCP hóps lifandi.
  • Vörulýsingar: Hvað eru vörulýsingar? Hvað eru datablöð, upplýsingablöð, tæknileg datablöð, specification og hver er munurinn á þessum hugtökum? Hvað þarf að koma fram í vörulýsingum (product description)?
  • Flæðirit: Hvað þarf að koma fram á flæðiritum? Hvernig eru flæðirit sett upp; flæði hráefna, inntök og úrtök? Tenging milli flæðirita þegar um er að ræða „flóknar“ vinnslur.
  • Hættugreining og aðferðarfræði.
  • Mikilvægir stýristaðir (MSS=CCP). HACCP plan.
  • Stýristaðir, vöktun, vikmörk, úrbætur, sannprófun og skráningar.
  • Vöktunar- og sýnatökuáætlun.

VACCP (matvælasvindl)  og TACCP (matvælaskemmdarverk).

Frávika- og úrbótaskráningar.

Sannprófun og innri úttektir.

Rekjanleiki.

Stutt upprifjun og próf í lok námskeiðs.

10 verkefni verða unnin á námskeiðinu. Athugið að einnig má gera ráð fyrir heimavinnu.

 

Tími og staður:  17., 18. og 19. nóvember 2025 kl. 9-15:30

og 27. og 28. nóvember 2025 kl. 9-15:30

Verð: 200.000 kr.- *

Skráning

  • Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!

* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið namskeid@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Sýni sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.