Námskeið fyrir þá sem nú þegar hafa vottun samkvæmt BRC matvælaöryggis staðli og aðra þá sem vilja kynna sér og ræða helstu breytingar
Farið verður yfir breytingar milli útgáfu 8 og 9 í BRC matvælaöryggis staðlinum og hvað þarf að gera til að mæta nýjum kröfum. Mikið er lagt upp úr umræðum og verkefnavinnu á námskeiðinu.
Efni námskeiðs:
Stutt kynning á BRC stöðlum og öðrum GSFI stöðlum
Saga BRC staðalanna og útbreiðsla: Hvert er hlutverk þeirra og hvar eru þeir algengastir. Hvenær taka breytingarnar gildi, hvernig er einkunnagjöf, notkun á BRC merkinu o.s.frv.
Farið verður ítarlega yfir þær kröfur sem hefur verið breytt og leiðir til að uppfylla þær á sem einfaldasta hátt.
Helstu breytingar snúa að:
- Matvælaöryggismenningu
- Gildingu á forvörnum og hættugreiningum
- Auknar kröfur til birgja um matvælavernd (TACCP) og matvælasvik (VACCP)
- Samþykkt á fræðsluaðilum og ráðgjöfum
- Massabókhald á miðum sem innihalda matvælaöryggis- og reglugerðarbundnar upplýsingar
- Áhættumat svæða
- Málmleitar og röntgentækjum (m.a. gilding á testkubbum)
- Samþykki, hönnun og prentun miða
- Viðbótarkröfur til rannsóknarstofa inni í matvælavinnslum
Einnig verður farið í afgreiðslu frávika sem upp kunna að koma og hvað þarf að koma fram á úrbótaskýrslu:
- Úrbætur
- Rótargreining
- Fyrirbyggjandi aðgerðir
- Sönnunargögn
Tími: 12.-13. desember 2022 kl.: 12:30-16:30
Staður: Sýni ehf. Víkurhvarfi 3, 203 Kópavogur / Teams
Verð: 75.000 kr.*
- Innifalið í verði eru námskeiðsgögn
- Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!
* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið matvaelaskolinn@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Matvælaskólinn sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.