Námskeið – HACCP 3 – Gæði og öryggi alla leið

13/05/2024 - 15/05/2024, All Day

Námskeið - HACCP 3 - Gæði og öryggi alla leið

Með áherslu á skoðunarhandbók frá MAST.

Námskeið fyrir alla þá sem vinna við innleiðingu og rekstur á HACCP kerfum t.d. meðlimi HACCP hópa, þá sem vinna við mikilvæga stýristaði, flokkstjóra, verkstjóra, tæknimenn o.s.frv.
Áhersla er lögð á að þátttakendur skilji grundvallaratriði HACCP gæðakerfisins og geti innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.

Efni námskeiðs:

  • Öryggi í gegnum alla “fæðukeðjuna”: Frumframleiðendur, matvælaframleiðendur, dreifingarfyrirtæki, smásalar, tækjaframleiðendur, framleiðendur umbúða og hreinsiefna.
  • Staðlar – stutt kynning (t.d ISO staðlar, IFS staðall, BRC staðall). Frábær hjálpartæki fyrir matvælafyrirtæki sem vilja vera í fremstu röð hvað varðar gæði og öryggi. Markmið, framtíðarsýn og skýr gæðastefna skiptir höfuðmáli fyrir fyrirtæki í fararbroddi.
  • Fyrirbyggjandi aðgerðir – GMP (góðir framleiðsluhættir) þurfa að vera mjög virkar áður en HACCP kerfi er komið á t.d virk hreinlætisáætlun, teikningar yfir flæði vöru og starfsfólks, kröfur til birgja, þjálfun starfsfólks, fyrirbyggjandi viðhald og hitastigsstjórnun.
  • HACCP gæðakerfið. Hvað er HACCP ? Hvernig komum við því á og hvernig innleiðum við það? Hvernig getur HACCP kerfið hjálpað til að auka öryggi matvæla ? Hættur, hættugreining, mikilvægir stýristaðir, eftirlit, vikmörk, úrbætur.
  • Yfirlit yfir helstu hættur í matvælum s.s sýkla, sníkjudýr, histamín, þungmálmar, díoxín, ofnæmisvaldandi efni, aðskotahluti o.fl.
  • Kvartanir – Hvernig vinnum við úr kvörtunum ? Rekjanleiki – eitt skref áfram og eitt skref aftur– hvað þýðir það í framkvæmd. Innköllun – prufuinnköllun.
  • Sannprófun á gæðakerfum – dagleg, vikuleg og árleg. Til að tryggja að ávallt sé verið að vinna eftir HACCP gæðakerfinu.

Tími: 13.-15. maí  2024  kl.: 10-16 fyrsta daginn, 9-15 hina tvo dagana

Staður: Sýni, Víkurhvarfi 3, 203 Kópavogi og Teams (fjarnámskeið). Hægt er að velja um stað- eða fjarnámskeið.

Verð: 130.000 kr.*

Skráning

  • Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, (hádegismatur og léttar veitingar)
  • Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!

* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið namskeid@syni.is Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Sýni sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.