Námskeið – HACCP 4 – Stjórnun HACCP kerfis – Stað- og fjarnámskeið (Teams)

11/11/2024 - 19/11/2024, All Day

Námskeið - HACCP 4 - Stjórnun HACCP kerfis - Stað- og fjarnámskeið (Teams)

Námskeið fyrir þá sem þegar hafa tekið HACCP 3, s.s. ábyrgðamenn HACCP kerfa og lykil stjórnendur, og vilja ná aukinni færni í HACCP m.a. vegna krafa í Alþjóðlegum matvælastöðlum.

Áhersla er lögð á að þátttakendur fái dýpri skilning á HACCP og geti sett upp og innleitt það í sínum fyrirtækjum. Mikið er lagt upp úr verkefnavinnu. Þátttakendur vinna m.a. verkefni úr eigin gæðakerfum.

Efni námskeiðs:

  • Stutt könnun og verkefnavinna (eins konar forpróf) úr efni fyrri námskeiða (HACCP 1,  HACCP 2 & HACCP 3). Nemendur fara saman yfir niðurstöður könnunarinnar.
  • 12 þrep Codex reglna um HACCP
    • HACCP hópur: Hvert er hlutverk hans og hvernig er besta að halda utan um vinnu HACCP hóps eða Gæðaráðs? – Verkefna og fundargerðarlistar til að halda vinnu HACCP hóps lifandi.
    • Vörulýsingar: hvað eru vörulýsingar? Hvað eru datablöð, upplýsingablöð, tæknileg datablöð, specification og hver er munurinn á þessum hugtökum? Hvað þarf að koma fram í vörulýsingum (Product description)
    • Flæðirit: Hvað þarf að koma fram á flæðiritum? Hvernig eru flæðirit sett upp; flæði hráefna, inntök og úrtök, CCP. Tenging milli flæðirita þegar um er að ræða „flóknar“ vinnslur. Verkefni: Sannprófun og úttekt á flæðiritum.
    • Hættur: Líffræðilegar, efnafræðilegar, eðlisfræðilegar hættur. Ofnæmisvaldar. Áhættumat = líkur x alvarleiki (risk assessment) og hættugreining (hazard analysis) með notkun áhættumatsfylkis og spurningatrés mikilvægra stýristað.
    • Áhættumat forvarna s.s. meindýravarna, forvarna vegna aðskotahluta, forvarna vegna starfsfólks, forvarna vegna skipulags húsnæði, viðhalds og þrifa og þrifaeftilits
    • Áhættumat hráefna. Ákvörðunartré fyrir hráefni. Mat á birgjum og birgjasamþykki.
    • Verkefni: Áhættumat forvarna og innri úttektir á forvörnum. Áhættumat hráefna.
    • Hættugreining og Mikilvægir stýristaðir (MSS=CCP). HACCP plan
    • Verkefni: Hættugreining á framleiðsluferli, vöru eða vöruflokkum. Gerð HACCP plans.
    • Vöktunar- og sýnatökuáætlunun. Frávika- og úrbótaskráningar.
    • Sannprófun og innri úttektir.
    • Þjálfun starfsfólks, þjálfunaráætlun, skráningar á þjálfun og mat á hæfni starfsfólks.
    • Rekjanleiki og prófun á rekjanleika

Tími:  11.-13. og 18.-19. nóvember 2024 kl. 9-15:30

Staður: Sýni, Víkurhvarfi 3, 203 Kópavogi og fjarnámskeið (Teams). Hægt er að velja um stað- eða fjarnámskeið.

Verð: 190.000 kr.- *

Skráning

  • Innifalið í verði er hádegismatur, léttar kaffiveitingar (staðnámskeið) og námskeiðsgögn
  • Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!

* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið namskeid@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Sýni sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.