Námskeið – Örverur, smitvarnir, sýnatökur og túlkun

21/11/2022 - 22/11/2022, All Day

Námskeið – Örverur, smitvarnir, sýnatökur og túlkun

Það sem þú þarft að vita um örverufræði ef þú vinnur með matvæli

Með auknum kröfum reglugerða og kaupenda um örugg matvæli þurfa matvælaframleiðendur meiri upplýsingar og þekkingu um örverufræði matvæla. Um er að ræða hagnýtt námskeið þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur bæti skilning sinn og geti nýtt þekkingu sína m.a. til að:

  • Þekkja reglugerðir og leiðbeiningar fyrir örverufræðileg viðmið.
  • Gera sýnatökuáætlanir og meta hvað þarf að mæla.
  • Meta örverufræðilegar hættur í vinnsluferli við gerð hættugreiningar og áhættumats.
  • Geta ákvarðað örverumælingar til að sannprófa hættugreiningu eða geymsluþol vöru.

Efni námskeiða má finna hér.

Tími:

21. nóvember 2022 kl.: 10:00-16:00

22. nóvember 2022 kl.: 9:00-15:00

Staður: Matvælaskólinn hjá Sýni, Víkurhvarfi 3, 203 Kópavogi og/ eða Teams

Verð: 80.000 kr.-*

 

Skráning

  • Innifalið í verði eru námskeiðsgögn, (hádegismatur og léttar veitingar)
  • Munið eftir styrkjunum úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!!

* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið matvaelaskolinn@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Matvælaskólinn sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.