Námskeið – HACCP 2 – Gæði og öryggi við meðferð matvæla – Stað- og fjarnámskeið (Teams)

16/10/2024 - 17/10/2024, 08:30 - 12:30

Námskeið - HACCP 2 - Gæði og öryggi við meðferð matvæla - Stað- og fjarnámskeið (Teams)

Námskeið fyrir alla þá sem meðhöndla matvæli á einn eða annan hátt

Með auknum kröfum reglugerða og kaupenda um örugg matvæli þurfa matvælaframleiðendur meiri upplýsingar og þekkingu um meðferð matvæla. Um er að ræða hagnýtt námskeið þar sem áhersla er lögð á að þátttakendur bæti skilning sinn og geti nýtt þekkingu sína til að framleiða örugg matvæli.

Námskeiðið verður kennt á íslensku en við skráningu er hægt að velja um stað- eða fjarnámskeið (Teams)

Efni námskeiðs:

  • Hættur við matvælaframleiðslu:
    • Sjúkdómsvaldandi örverur.
    • Efnamengun í matvælum.
    • Aðskotahlutir.
    • Ofnæmisvaldar.
  • Meðferð matvæla og geymsla matvæla:
    • Krossmengun – Hvað er krossmengun og hvernig getum við hindrað hana?
    • Mikilvægi kælingar.
  • Fyrirbyggjandi aðgerðir:
    • Þrif og þrifaáætlanir.
    • Meindýr og meindýravarnir.
    • Birgjar – Val á birgjum og kröfur til þeirra.
    • Kvörðun og prófun mælitækja.
    • Starfsmenn – Umgengi, persónulegt hreinlæti og heilbrigði starfamanna.
    • Þjálfun – Kröfur um hæfni starfsmanna, þjálfun, þjálfunaráætlanir.

Tími: 16.-17. október 2024  kl.: 8:30-12:30

Staður: Sýni ehf., Víkurhvarfi 3, 203 Kópavogi / Teams

Minnum á styrki úr fræðslusjóðum verkalýðsfélaganna!

Verð: 65.000 kr.*

Skráning

* Tilkynna þarf forföll a.m.k. 2 virkum dögum fyrir námskeið á netfangið namskeid@syni.is. Berist afskráning of seint eða alls ekki áskilur Sýni sér rétt til að innheimta námskeiðsgjöld að fullu. Ef ekki næst lágmarks þátttaka á námskeiðið áskilur Sýni sér þann rétt að fresta eða aflýsa námskeiðinu með minnst sólarhrings fyrirvara.